Akureyrarvaka hefst í dag

Akureyrarvaka verður haldin um helgina og verður sett með dagskrá í Lystigarðinumí kvöld  undir yfirskriftinni Rökkurró. Veðurspáin fyrir helgina er ekki eins og best verður á kosið en aðstandendur hátíðarinnar ætla ekki að láta það á sig fá og halda ótrauðir sínu striki. Ef til vill verða einhverjir viðburðir færðir um set og hafðir innandyra ef veður verður til óþæginda.

Hápunktur Akureyrarvöku verður á morgun þegar efnt verður til litríkrar listaveislu með alþjóðlegum blæ á Ráðhústorgi, í Listagilinu og víðar um bæinn. Dagskrá laugardagsins lýkur með útitónleikum hljómsveitarinnar Retro Stefson og gesta á risasviði neðst í Listagilinu kl. 21.00. Yfirskrift tónleikanna er Retro Stefson Karnival. Hljómsveitin vinsæla flytur þar eigin lög en klæðir einnig alkunna smelli frá fyrri tíma í „Retro Stefson búning“ og fær í því skyni til liðs við sig m.a. söngvarana Pálma Gunnarsson og Helenu Eyjólfsdóttur.

Aðrir hápunktar dagsins eru Vísindasetur í Rósenborg þar sem ýmsar furður verða kynntar ásamt því að sérfræðingar útskýra sprengingar í Vaðlaheiðargöngum. Boðið verður upp á forvitnilega eldhúsrétti frá fjölda þjóðlanda í Menningarhúsinu Hofi. Þar verða einnig kynntir barnaleikir frá öllum heimshornum. Listagilið verður iðandi af lífi allan laugardaginn með tónlist, listsýningum, matarmarkaði, listmálurum að störfum og fleiru.

Nýjast