Afhentu skellinöðrukuml

Gjöfinni verður komið fyrir á góðum stað á safninu
Gjöfinni verður komið fyrir á góðum stað á safninu

Nemendur Hlíðarskóla á Akureyri og landeigendur Kollsvíkur í Patreksfirði hafa afhent Mótorhjólasafni Íslands á Akureyri nokkurs konar kuml, skellinöðrukuml.

Um er að ræða Riga skellinöðru árgerð 1969 og var hún grafin var upp í fjörunni í Kollsvík í fyrra. Skellinaðran var futt norður, ásamt sandi úr Kollsvík. Talið er að skellinaðran hafi verið grafin í sandinn um 1980. Nemendur Hlíðarskóla afhentu Mótorhjólasafni Íslands svo skellinöðruna til varðveislu í dag.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast