Við höfum verið gæfusöm í okkar rekstri, aldrei reist okkur hurðarás um öxl en starfsemin hefur vaxið og dafnað og farið hægt og sígandi upp á við, segja þau Valmundur Pétur Árnason og Ingibjörg Ringsted eigandur Lostætis á Akureyri.
Fyrirtækið er nú á sautjánda starfsári, var stofnað 1. september árið 1996 og þá voru starfsmenn þess 5 talsins en eru nú um 60. Félagið sérhæfir sig í veitingaþjónustu við stærri og minni fyrirtæki og hópa, rekur kaffiteríur og mötuneyti svo eitthvað sé nefnt. Allt að 2000 manns fá hádegisverð hjá fyrirtækinu daglega og magnið sem höndlað er með er gríðarlegt, um 250 kíló af fiski þarf fyrir svo stóran hóp og allt að 350 kíló af kjöti svo dæmi sé tekið.
Þau Ingibjörg og Valmundur segja að starfsemin hafi í tímans rás smám saman aukist.
Þetta vatt upp á sig og eiginlega án þess að við værum mikið að gera í því að markaðssetja okkur, verkefnin hafa að stórum hluta komið til okkar, segir Ingibjörg.
Þannig tók félagið við rekstri kaffistofu Háskólans á Akureyri um mitt ár 2000 og kaffiteríu og mötuneyti Verkmenntaskólans á Akureyri bættist við árið 2005.
Haldið í víking austur á land
Stóra stökkið var í júlí árið 2007, en þá tók Lostæti við rekstri mötuneytis Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði. Félagið hefur síðan þá séð um rekstur og umsjón með mötuneyti sem og veitingaþjónustu fyrir Alcoa. Þau kváðust afar hreykin af því að hafa orðið fyrir valinu, en alls var fulltrúum 5 fyrirtækja boðið að skoða aðstæður og bjóða í reksturinn. Verkefnið hafi þóverið krefjandi, en skemmtilegt og af því hafi þau lært mikið.
Gott hráefni, góð þjónusta og hæft starfsfólk skipta máli
Þá nefna þau að fjölmörg önnur atriði skipti máli þegar kemur að rekstri fyrirtækisins sem sérhæfir sig í veitingaþjónustu. Þannig þurfi ævinlega að bjóða viðskiptavinum upp á ferskt og gott hráefni og hafi fyrirtækið metnaðarfulla stefnu þegar að því kemur. Og við leggjum líka mikið kapp á að veita góða þjónustu, segir Valmundur.
Til að reka gott fyrirtæki sem standi undir væntingum viðskiptavina þurfi það að hafa á að skipa góðu starfsfólki. Innanborðs eru menntaðir matreiðslumenn, bakarar, smurbrauðsdömur, viðskiptafræðingar og lögfræðingur ásamt frábæru almennu starfsfólki svo eitthvað sé nefnt.
Við erum mjög heppin með starfsfólk, hjá okkur starfar stór hópur af hæfu fólki. Framtíðin er björt og margt áhugavert í athugun bæði á Norður- og Austurlandi, því það eru tækifæri eru fyrir hendi og margt í deiglunni.