Gríma Sjálfstæðisflokks fallin?

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson

Ég er langþreyttur Sjálfstæðismaður (smá rant). Búinn að vera flokksbundinn frá 15 ára aldri með einu hléi þó. Ég er meira að segja í þeim armi sem hlýtur að vera langþreyttastur, en það eru Sjálfstæðismenn utan höfuðborgarsvæðisins.

Nú þykir öllum vænt um sitt nánasta umhverfi og þykir eðlilegt að þeir og þeirra slekt búi við sjálfsögð lífsþægindi eins og heilsugæslu, aðgengi að menntun, góðar samgöngur (þmt ferðalög til útlanda) og almenn góð rekstrarskilyrði til uppbyggingar atvinnustarfsemi og sköpun starfa, óháð búsetu.

Það er því með trega og tárum að fylgjast þessa dagana með þremur ráðherrum Sjálfstæðisflokksins klúðra illilega tækifærum til að koma sér upp úr sjálfmiðuðu kjördæmapoti og efnahagslegri skammsýni.

Í stað þess að hugsa um landið allt til lengri tíma er hið rétta andlit afhjúpað…

Í fyrsta lagi fór Bjarni fjármálaráðherra fyrir gröfuflokki til að hefja viðbyggingu við Leifsstöð sem kosta mun ríflega 20 milljarða. Áður hefur Bjarni lýst því yfir að hann hafi ekkert með Isavia að gera og verði að gæta armslengdarsjónarmiða. Hann hafi í reynd ekkert með stefnu eða ákvarðanir þessa opinbera hlutafélags að gera.

Hann var þó í forsvari okkar skattgreiðenda með að gauka að þeim 15 milljarða eiginfjárinnnspýtingu úr okkar vösum nýverið og er síðan mættur á skófluna til að byggja við Leifsstöð fyrir 20 milljarða.

Akureyri og Egilsstaðir, varavellir Keflavíkur og mögulegar gáttir inn í landið, hafa vælt um 3-5 milljarða á undangengnum árum og séð slælegan árangur. (Armslengdarsjónarmiðin sko…)

Í samhengi 150 milljarða fjárfestingaráætlunar Keflavíkur eru þetta hlægilegir smámunir.

Í öðru lagi kynnti Þórdís Kolbrún nýverið s.k. Vörður í íslenskri ferðaþjónustu, en þær eiga að stuðla að því að markaðssetja Ísland og draga til okkar ferðamenn eftir kóf.

Einn hængur er á þessum Vörðum.

Þær eru s.s. þeir staðir sem voru að springa á saumunum fyrir kóf og erlendir ferðamenn kvörtuðu undan að hitta bara aðra ferðamenn á og þetta rataði helst í erlendu pressuna. Þrengslin og mannmergðin.

Vörðurnar, sem samráðslítið voru ákvarðaðar af ráðuneyti Kolbrúnar, eru Þingvellir, Gullfoss, Geysir og Jökulsárlón.

Þetta er ekki grín.

(Dynjandi, Snæfellsjökull, Mývatn, Dettifoss, Stuðlagil,.. Anyone?)

Á að fara af stað með markaðssetningu Íslands alls út úr kófinu með þessu. Að stappa aftur öllum ferðamönnunum á sömu staðina í eina kös? Það er ekki það sem talað hefur verið um.

Í þriðja lagi kynnti Áslaug Arna ákvörðun um “tafarlausa” viðbyggingu á flugskýli Gæslunnar í Vatnsmýrinni, rétt fyrir prófkjör flokksins í Reykjavík. Hvaða framtíðarsýn eða hyggjuvit getur varið það að hafa allt bráðaviðbragð landsmanna samankomið á sama bletti á vesturannesi landsins, þvert gegn ráðleggingum sérfræðinga og vilja Gæslunnar?

Eðlilegast er að staðsetja þyrlu þar sem líklegast er að hún komi að sem bestum notum í bráðaviðbragði. Það þýðir ekki allar þyrlur á sama bletti, svona ef þið voruð í vafa.

Sjómenn skipa fyrir vestan, austan og norðan land, auk íbúa og ferðamanna á þeim svæðum, verða bara að bíða lengur eftir að þyrlan komist fyrst yfir hálendið úr Reykjavík.

Hvað er fólk að drekka þarna í borginni!?

Í öllum ofangreindum dæmum eru það ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sem svo fara fram og virða að vettugi landsfundarsamþykktir flokksins, ráðleggingar innlendra og erlendra sérfræðinga, stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og almennt hagmuni landsins alls.

Ég studdi nýverið góða fulltrúa í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi. Mér finnst þessi framganga ráðherranna vera blaut tuska í andlit alls þess góða Sjálfstæðisfólks sem vill verja kröftum sínum í að starfa samkvæmt Sjálfstæðisstefnunni um land allt og hefur trúað á efndir.

Sé það vilji forystu Sjálfstæðisflokksins að sækja einungis fylgi sitt til kjósenda á höfuðborgarsvæðinu, þá er hreinlegra að segja það berum orðum. Landlausir Sjálfstæðismenn utan þess svæðis neyðast þá til að greiða öðrum flokki sem hefur alvöru byggðastefnu að leiðarljósi atkvæði sitt, skila auðu á kjörstað eða finna sér annan farveg.

 


Athugasemdir

Nýjast