Wildlife Iceland

Í vor hafa fimm  fyrirtæki undir merkinu Wildlife Iceland boðið blaðamönnum frá fjórum löndum í upplifunarferðir þar sem kynntir eru möguleikar á Norðausturlandi til dýralífs- og náttúruskoðunar.  Fyrirtækin sem standa að Wildlife Iceland eru Gentle Giants, Fuglasafn Sigurgeirs, Gistiheimilið að Björgum, Fjallasýn og Hótel Rauðaskriða.   Markaðssetning hefur fyrst og fremst verið í Evrópu.  Í fyrra kom  blaðamaður frá Birdwatch Magazine í Bretlandi og í ár komu blaðamenn frá Birdwatching Magazine í Bretlandi, sem er stærsta almenna fuglaskoðunartímarit þar, og blaðamenn frá BirdLife International í Svíþjóð, Danmörku og Sviss.  Ennfremur kom, á vegum Wildlife Iceland, blaðamaður frá BBC Wildlife Magazine.  Tilgangur ferðanna er að upplifa það sem Norðausturland hefur upp á að bjóða og skrifa greinar í viðkomandi tímarit.  Alls eru áskrifendur þessara tímarita tæplega 200.000 og gera má ráð fyrir að lesendur séu  um hálf milljón manns.  Wildlife Iceland hefur einnig sett í loftið vefsíðu til frekari kynningar og er slóðin www.wildlifeiceland.is

Nýjast