Vísindakaffi á Akureyri í boði HA og Rannís

Í tilefni af Vísindavöku 2010 og Degi evrópska vísindamannsins bjóða Háskólinn á Akureyri og Rannís upp á Vísindakaffi á Akureyri fimmtudaginn 23. september kl. 20:00 Í Hofi á 1862 Nordic Bistro. Vísindakaffið ber yfirskriftina: Erfðabreytt framtíð - sjálflýsandi gullfiskar og frostþolin kartöflugrös?  

Þar munu Dr. Kristinn P. Magnússon og Dr. Oddur Vilhelmsson dósentar við Háskólann á Akureyri og sérfræðingar í erfðavísindum og erfðatækni spjalla um erfðavísindi og hagnýtingu þeirra, svo sem við klónun, kynbætur dýra og jurta og ræktun erfðabættra landbúnaðarafurða. Hver er framtíð íslensks lífríkis og nýtingar þess í ljósi þróunar í erfðavísindum og erfðatækni? Hvað er í húfi og hvar eru tækifærin fyrir landbúnað og framleiðslu  lyfja og matvæla? Eftir stutt spjall frá þeim Kristni og Oddi mun Pétur Halldórsson, útvarpsmaður hvetja til  og stýra umræðu.

Allir eru velkomnir og hvattir til að taka þátt í skemmtilegu og fræðandi spjalli yfir vænum vísindakaffibolla og með því í boði HA og Rannís. 

Nýjast