Vinningsmiðinn í lottóinu keyptur á Akureyri

Einn miðaeigandi hafði heppnina heldur betur með sér að þessu sinni en hann var með allar tölurnar réttar í lottóinu í gærkvöld og fær rúmlega 28,3 milljónir króna í vinning.  Hann keypti miðann sinn í Hagkaupum við Furuvelli á Akureyri.  Sjö miðaeigendur voru með fjórar réttar tölur auk bónustölu og fær hver um sig rúmlega 110 þúsund kall í vinning.   

Þeir keyptu miðana sína á eftirtöldum stöðum; Foldaskálanum, Hverafold í Reykjavík - Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík - Olís á Höfn - Select við Hagasmára, Kópavogi - N1 við Ægissíðu, Reykjavík - og tveir miðar eru í áskrift, segir vef Íslenskrar getspár.

Nýjast