Vinna við Vaðlaheiðargöng hófst í morgun þegar undirbúningsvinna að bráðabirgðabrú fór af stað en það er verkatakafyrirtækið G. Hjálmarsson á Akureyri sem sér um verkið. Byrjað verður á því að gera stöpla undir brúna og að því loknu verður yfirbygging sett upp. Vélsmiðjan Stálgæði í Kópavogi mun svo sjá um smíði á þeim hluta yfirbyggingarinnar sem er úr stáli en Vegagerðin mun sjá um að koma henni fyrir. Áætlað er að bráðbirgðabrúin verði tilbúinn 1. október en reiknað er með að fyrsta sprenging fyrir sjálfum göngunum verði um áramótin.