Vinabæjarmót ungmenna á Norðurlöndunum á Akureyri

Frá æfingu sviðslistahópsins í Hofi í morgun. Mynd: Ragnar Hólm.
Frá æfingu sviðslistahópsins í Hofi í morgun. Mynd: Ragnar Hólm.

Síðdegis í gær hófst á Akureyri vinabæjarmót ungmenna frá öllum Norðurlöndunum en slík mót eru haldin á hverju ári til skiptis í vinabæjakeðjunni (Akureyri, Álasundi í Noregi, Lathi í Finnlandi,Randersí Danmörku og Västerås í Svíþjóð). Að þessu sinni eru mætt til leiks um 100 ungmenni á aldrinum 16–20 ára sem taka þátt í fernskonar ólíkum smiðjum: fjölmiðlahóp, siglingarhóp, hljómsveit og sviðslist. Í lokin verður sett upp leiksýningin Lifun í Hofi kl. 16 á laugardag en sýningin er byggð á tónverki hljómsveitarinnar Trúbrot. Með í för eru einnig hópstjórar ungmennanna og bæjarfulltrúar og embættismenn sem fara í skoðunarferðir um næsta nágrenni bæjarins og sitja fundi með starfsbræðrum sínum á Akureyri. NOVU 2012 á Akureyri verður slitið laugardagskvöldið 7. júlí.

Nýjast