Vill stórauka samstarf við Þingeyinga

170 nemendur voru brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akureyri helgi af ýsmum deildum skólans. Flestir brautskráðust sem stúdentar, eða 109, en einnig brautskráðust nemendur af ýmsum starfsbrautum skólans, svo sem vélstjórar, sjúkraliðar, meistarar í iðngreinum, bifvélavirkjar, kjötiðnaðarmenn, matartæknar, bifvélavirkjar, húsasmiðir, húsgagnasmiðir, rafvirkjar og stálsmiðir.

„Það skiptir okkur hér fyrir norðan miklu máli að geta boðið upp á sem fjölbreyttast nám; ekki bara fyrir unga fólkið á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu; því að í VMA þjónustum við miklu stærra svæði bæði fyrir vestan okkur og austan – um 25% nemenda eiga lögheimili utan Eyjafjarðarsvæðisins,“ sagði Hjalti Jón Sveinsson skólastjóri í útskriftarræðu sinni.

 Eyjafjörður og Þingeyjarsýslur eitt mennta- og atvinnusvæði

„Okkur bíður að mínu mati mikil áskorun sem er fólgin í því að gera nágrönnum okkar í Þingeyjarsýslum kleift að sækja verk- og tækninám hingað í VMA, bæði fólki á vinnumarkaðinum og ungmennum á framhaldsskólaaldri. Vaðlaheiðargöngin eru nú í burðarliðnum en með tilkomu þeirra verður rutt úr vegi síðustu hindruninni á þeirri vegferð að gera Eyþingssvæðið að einu mennta- og atvinnusvæði. Það er von mín að með samstarfi við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Þekkingarnet Þingeyinga á Húsavík og Framhaldsskólann á Húsavík muni okkur takast að þróa raunhæfa leið í þessum efnum,“ sagði Hjalti Jón Sveinsson.

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast