Vigdís Finnbogadóttir hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2010 voru afhent á hátíðardagskrá í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Auk þess voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Vigdísi Finnbogadóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2010.  

Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar segir: ,,Vér íslendíngar höfum nú einusinni hlotið þessa hermdargjöf, hið íslenska mál, og það er dýrlegasta menníngarverðmætið sem vér eigum, og ef vér viljum ekki gera eitthvað fyrir snillínga þess, þá eigum vér að flytja héðan burt - alt kraðakið einsog það leggur sig - og það strax á morgun. Vér eigum að fara til Mexíkó og fara að tala spænsku." Halldór Laxness mælir svo í erindi um menningarmál árið 1926. Frá því að þessi orð féllu hafa fjölmargir lagt lóð á vogarskálar svo efla megi málvitund þjóðar og styrkja stoðir íslenskrar tungu. Meðvituð umræða um tungumálið og gildi þess nærir og bætir skilyrði fyrir vöxt og framgang málsins.

Ráðgjafarnefndin mælir að þessu sinni með því að Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri fái Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu.  Í reglum mennta- og menningarmálaráðuneytis um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar tungu segir að auk Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar sé heimilt að veita sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu. Mennta- og menningarmálaráðherra ákvað að veita tvær viðurkenningar 2010. Önnur var veitt Möguleikhúsinu og hina fékk hljómsveitin Hjálmar.

Nýjast