Viðar Sigurjónsson verður áfram þjálfari meistaraflokks Þórs/KA í knattspyrnu kvenna en þetta staðfestir Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs við Vikudag. Samningar voru handsalaðir í kvöld en Viðar mun skrifa undir tveggja ára samning við félagið á föstudaginn næstkomandi. Viðar tók við liðinu í lok sumars af Dragan Stojanovic og undir hans stjórn náði liðið öðru sæti Pepsi- deildarinnar og tryggði sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu.