Víða mikið álag hjá deildum bæjarins vegna erfiðleika fólks

Akureyrarbær þarf að spara enn meira í rekstri á næsta ári og eru allar deildir að leita leiða til að skera niður útgjöld þ.m.t. skóladeild. Fólki í greiðsluerfiðleikum með greiðslur fyrir börnin í mötuneytum og í leikskólum hefur fjölgað en enn sem komið er hefur það ekki bitnað á börnunum. Í tillögum hjá ríkinu er til skoðunar að fækka  hjúkrunarrýmum um 7 í greiðslum til Öldrunarheimilisins á næsta ári.  

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í bókun frá síðasta fundi Almannaheillanefndar Akureyrar, sem haldinn var fyrir helgi. Einnig kemur fram að staðan á búsetudeild er svipuð og sl. vor en verið er að skoða mögulegar leiðir til að bregðast við boðuðum niðurskurði á fjárveitingum ríkisins á næsta ári. Nóg er að gera hjá starfsfólki og eru langtímaveikindi farin að herja á starfsfólk vegna álags. Nokkuð er um að lokanir á öðrum stofnunum bitni á heimaþjónustu og heimahjúkrun. Nóg er að gera á fjölskyldudeildinni en staðan að mestu viðráðanleg. Mikil aukning hefur verið það sem af er þessu ári í grunnframfærslu fjárhagsaðstoðarinnar. Mikið álag er í barnaverndinni og nokkur aukning hjá skólasálfræðingum. Nokkrir skjólstæðingar fjölskyldudeildarinnar tóku þátt í atvinnuátaki í sumar og komust sumir þeirra í vinnu í framhaldi af því.

Heilsuverndin á heilsugæslustöðinni gengur vel en barnafólki fjölgar í bænum. Skólaheilsugæslan er fullmönnuð og ný vinnubrögð í gangi þar að einhverju leyti. Skortur á aðgengi að sérfræðingum þýðir meiri ásókn í heilsugæslulækna og mikið álag hefur verið á starfsfólk í móttöku og á símaskiptiborðum. Biðtími eftir tíma hjá heilsugæslulækni er að lengjast og hann datt ekki niður í sumar eins og oft áður. Álag er mikið í heimahjúkrun og það vantar upp á að hægt sé að veita þá þjónustu sem sótt er um. Starfsfólk er þreytt eftir sumarið. Óvissa er enn með niðurskurð á næsta ári.

Á fundi Almannaheilldanefndar var spurt um almennt ástand fólks og hvort vitneskja væri um einstaklinga sem svelta. Vitað er að margir eiga erfitt en ekki er almenn vitneskja um fólk sem sveltur. Rætt var allmikið um þörf fyrir "súpueldhús" og ákveðið að kanna þann möguleika nánar. Fram kom að í báðum kirkjunum er boðið upp á hádegisverð einu sinni í viku í tengslum við starfið þar og þar geta einstaklingar fengið frían mat. Rætt var nokkuð um hverjir þurfa raunverulega aðstoð í samfélaginu í dag og hvort og þá hvernig hægt er að rétta því fólki hjálparhönd. Einnig var rætt um nauðungarsölur á íbúðum á Akureyri.

Nýjast