Verum bleik á föstudaginn

Eins og flestir vita er október mánuður bleiku slaufunnar og árveknisátaks gegn krabbameinum hjá konum. Krabbameinsfélagið efnir nú til bleiks dags og hvetur fólk um land allt til að klæðast bleiku á föstudaginn til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Krabbameinsfélagið gaf Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins en þau voru sérsniðin á hann af Berglindi Magnúsdóttur í Klæðskerahöllinni  og hyggst hann skarta þeim á morgun.  

„Við höfum nú þegar heyrt af nokkrum vinnustöðum sem ætla að leika sér svolítið með bleika daginn og keppa um flottasta dressið og bestu bleiku deildarnar," segir Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs - og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins.  „Við viljum vekja athygli á þessu þarfa átaki en hafa samtímis gaman af! Því hvetjum við fólk  til að senda okkur skemmtilegar, bleikar myndir af vinahópnum eða vinnufélögunum á netfangið laila@krabb.is sem við munum svo setja á síðurnar okkar, www.krabb.is og www.facebook.com/bleikaslaufan. Gerum okkar dagamun og klæðumst bleiku til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast