Verksmiðja Becromal flutt frá Noregi til Íslands

Ítalska fyrirtækið Becromal, sem er að byggja upp aflþynnuverksmiðju í Krossanesi á Akureyri, er að flytja verksmiðju sína frá Notodden í Noregi til Íslands. Samkvæmt norskum miðlum missa 74 vinnuna í Notodden vegna þessa á árinu. Einnig kemur fram að þegar hafi 12 vélar verið fluttar úr verksmiðjunni í Notodden til Íslands og að flytja eigi allar vélarnar til Íslands fyrir lok þessa árs.  

Ennfremur segir í norskum miðlum að þessar fréttir hafi í raun ekki komið á óvart en vitað var að stjórn verksmiðjunnar hafði reynt að gera hagstæða orkusamninga við norsk stjórnvöld en án árangurs. Framleiðsla í verksmiðjunni í Krossanesi er þegar komin í gang. Alls verða vélar verksmiðjunnar 62 og er ráðgert að þær verði allar komnar í gang árið 2011.

Nýjast