Ekki láta tækifærið til þess að sækja um í listsjóðinn VERÐANDI fram hjá þér fara!
Helstu markmið VERÐANDI eru að auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Menningarhúsið Hof hefur uppá að bjóða, stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í húsinu og nýta möguleika þess sem best. Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði, tækniþjónustu og framhúsi.
Styrkþegar VERÐANDI eru orðnir 59 á átta árum. Meðal styrkþega má nefna Matiss Leo Mekl, Eik Haraldsdóttur, Guðmund Tawan, Tinnu Björgu Traustadóttur, Hljómsveit Akureyrar, Birki Blæ og Einar Óla, Alexander Edelstein, Jón Þorsteinn Reynisson, Jónínu Björt Gunnarsdóttur, Miomantis, Gospelraddir Akureyrar og leikhópinn Spritz og Viktoríu Sigurðardóttur.
Viðburðirnir sem fengið hafa styrk hafa verið af ýmsum toga s.s. tónleikar, dansverk og leikverk og hafa sum þeirra verið frumsamin, en önnur þekkt. Það er óhætt að segja að styrkþegar VERÐANDI hafi með viðburðum sínum aukið enn frekar á fjölbreytt listalíf, ekki bara hér í Hofi heldur bæjarins alls, segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri og verkefnastjóri VERÐANDI um leið og hún hvetur áhugasama um að kynna sér málin og sækja um.
VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningarfélags Akureyrar sem kallar nú eftir umsóknum fyrir starfsárið 2026-2027.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 3. maí.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar - mak.is