Veiðigjald getur flýtt Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum

Steingrímur J. Sigfússon segir veiðigjaldið ekki landsbyggðarskatt
Steingrímur J. Sigfússon segir veiðigjaldið ekki landsbyggðarskatt

“Mér er nú ekki kunnugt um að Akureyrarbær muni greiða veiðigjald og mér ekki kunnugt um að þessir fjármunir hafi farið í að borga útsvar eða leggja inn peninga til sveitarfélaganna. Það eru eigendur útgerðanna sem greiða þetta gjald, og það minnkar sú framlegð og sá gróði sem þær hafa,” segir Steingrímur Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í samtali við Vikudag, aðspurður um hvort nýttt veiðigjald sem samkomulag hefur náðst um á þingi sé ekki í raun skattur á útgerðarbæ eins og Akureyri. Hann segir einnig að veiðigjald muni ganga inn í samgönguáætlun og gera það að verkum að hægt verði að flýta bæði Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum.

Steingrímur segir umræðu um landsbyggðarskatt á villigötum þegar komi að því að greiða eðlilegt afgjald fyrir afnot af sameiginlegri auðlind og varasamt að hólfa þjóðina niður í þessum efnum.  Hann segir að svo framarlega sem gjaldtakan sé eðlilega stillt af miðað við afkomu greinarinnar á hverjum tíma eigi þessi gjaldtaka ekki að hafa nein áhrif af þessu tagi. “Eins og þetta er stillt af núna, þá er lagt af stað mjög varlega miðað við þá gríðarlega góðu afkomu sem er í greininni um þessar mundir. Það er gleðilegt að greinin hefur styrkst mikið undanfarin  fjögur ár og notið þessa góða árferðis sem verið hefur, en það hefur hún gert án þess að leggja mikið af mörkum i formi veiðigjalda. Þannig að það er kominn er tími á að þjóðin fái meira í sinn hlut. Það kemur sér líka vel fyrir grátt leikinn ríkissjóð eftir hrunið og þá getum við, að hluta til á grundvelli þessa, sett í gang framkvæmdir í landinu. Þetta gengur beint inn í samgönguáætlun og gerir það að verkum að við getum flýtt Norðfjarðargöngum og síðan Dýrafjarðargöngum og þá sjá menn nú beint árangurinn af því að ríkið verður í færum til að láta slíka hluti gerast,” segir Steingrímur. Hann segir að þegar þetta sé allt haft í huga sé ekki hægt að tala um landsbyggðarskatt og vonar að menn verði sæmilega sáttir.
Lesa má meira um sjónarmið Steingríms í Vikudegi sem kemur út af fimmtudag

Nýjast