Vaxandi stemmning meðal bæjarbúa

Það verður mikið líf og fjör á Akureyri næstu daga og vikur. Mynd/Þórhallur Jónsson.
Það verður mikið líf og fjör á Akureyri næstu daga og vikur. Mynd/Þórhallur Jónsson.

Mikil stemmning er farinn að myndast á meðal bæjarbúa vegna Afmælisvöku Akureyrar en hátíðin hefst í dag og stendur fram til 2. september. „Ég finn mjög fyrir vaxandi spenningi á meðal bæjarbúa og það er ótrúleg jákvæðni í loftinu,” segir Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri afmælishátíðarinnar. „Ég fæ einnig fjölmargar fyrirspurnir frá fólki víðsvegar að af landinu. Það er t.d. mikið um að brottfluttir Akureyringar séu að hafa samband og kynna sér afmælishátíðina. Einnig er fólk sem hefur aldrei búið hérna að forvitnast um hátíðina. Það þykir mörgum svo vænt um Akureyri,” segir Sigríður.

Búist er við miklum fjölda gesta yfir afmælishátíðina en hápunktur hátíðarhaldanna verður um aðra helgi. Um komandi helgi er áhersla lögð á unga fólkið og uppákomur sem þau vilja njóta og taka þátt í. Sigríður segir undirbúning fyrir hátíðina hafa gengið vel og allt sé að verða klárt.

„Það er í mörg horn að líta og allir sem eitthvað koma að hátíðinni að fulla að undirbúa til að geta boðið gestum upp á sem fjölbreyttasta dagskrá,” segir Sigríður. Sjálfur afmælisdagurinn verður á miðvikudaginn 29. ágúst í næstu viku.

Nýjast