Nú er flutningi lagersins yfir í húsnæði Vélaborgar að Krókhálsi 5F í Reykjavík lokið og sala úr honum er þegar hafin. Seint á síðasta ári festu eigendur Vélaborgar kaup á öllum varahlutalager Vélavers. Eftir þau kaup hefur fyrirspurnum til Vélaborgar sem og útvegun varahluta fjölgað gríðarlega. Starfsmenn Vélaborgar í varahluta- og þjónustudeild hafa lagt sig alla fram um að leysa úr þeim vandamálum viðskiptavina er upp koma.
Með uppkaupum á lager Kraftvéla og Vélavers hefur nú verið stigið stórt skref í þá átt að þjónusta enn betur en áður fyrrverandi viðskiptamenn þessara fyrirtækja. Einnig höfum við alltaf lagt á það áherslu að hafa aðgang að hraðvirku og hagkvæmu pöntunarkerfi á þeim varahlutum sem ekki eru til á lager. Í hinum nýkeypta lager er mikið magn af varahlutum og rekstrarvörum í merki eins og Komatsu, Rammer, Moxy, Fintec, Hako, Atlet, Tamrock, Dynapac, JLG, Matbro og Sandvik. Einnig ýmis tæki og aukahlutir eins og Hinowa smátæki, Miller skóflur og hraðtengi, Topcon mælitæki, Dynapac jarðvegsþjöppur og slípiþyrlur, Engcon rótotilt og margt fleira.
Hjá Vélaborg og systurfélögum, VB Landbúnaði og VB Vörumeðhöndlun starfa 55 manns, þar af 10 í varahlutum og yfir 20 í þjónustu og Vélaborg er með verkstæðisrekstur bæði á Austurlandi og í Reykjavík. Hjá Vélaborg er nú staðsettur stærsti vörulager af íhlutum og rekstrarvörum í vinnuvélar á Íslandi og eru nýir viðskiptavinir velkomnir. Það borgar sig að hringja fyrst í Vélaborg og kanna hvort að varahluturinn sé til en hann gæti hæglega verið til á góðu verði, segir í fréttatilkynningu. Nánari upplýsingar eru veittar hjá sölumönnum Vélaborgar í síma 414 8600.