Varað við hvatningu um ofbeldi gagnvart rauðhærðum

Á morgun, föstudaginn 20. nóvember, hefur verið boðaður svokallaður „Kick a ginger day" á Facebook. Í því felst að sparka megi í þá sem rauðhærðir eru og er fólk beinlínis hvatt til þess. Heimili og skóli og framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar á Íslandi telja að með þessu háttalagi sé verið að hvetja til ofbeldis sem felur í sér niðurlægingu og virðingarleysi.  

Við beinum þeim tilmælum til skólastjórnenda að vekja athygli foreldra og nemenda á því að skólinn muni ekki líða slíka háttsemi. Því mælumst við til þess að foreldrar og aðrir forráðamenn verði upplýstir í dag og gert grein fyrir hvernig skólinn muni bregðast við brotum af þessu tagi. Jafnframt verði nemendur hvattir til að taka afstöðu gegn slíku atferli, athygli vakin á gagnkvæmri virðingu og gildi þess að nemendur sýni hver öðrum tillitsemi, segir í tilkynningu frá Heimili og skóla.

Nýjast