Varað við hugmyndum um sam- einingu og niðurlagningu embætta

Á aðalfundi Félags lögfræðinga á Norður- og Austurlandi, sem haldinn var á Egilsstöðum nýlega, var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er eindregið og varað við framkomnum hugmyndum um sameiningu og niðurlagningu ýmissa mikilvægra embætta sem nú starfa á landsbyggðinni.    

Með þeim tillögum, sem að þessu sinni snúa að héraðsdómstólum, sýslumönnum og skattstjórum, sé alvarlega grafið undan þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar og lífsgæði þar skert, í flestum tilfellum án þessa að líkur séu á að öðrum og jákvæðari árangri yrði náð. Félag lögfræðinga á Norður- og Austurlandi vill ennfremur árétta, að nái tillaga um sameiningu héraðsdómstóla fram að ganga, er fyrirsjáanlegt að mjög muni fjara undan þeim lögmannsstofum sem nú starfa á landsbyggðinni en þeim fjölgaði er núverandi dómstólaskipan var tekin upp. Mjög mikilvægt er, að sem víðast á landsbyggðinni bjóðist heimamönnum öflug og vönduð lögmannsþjónusta sem stenst fyllilega samjöfnuð við það sem gerist annarsstaðar á landinu. Með framkominni tillögu er grundvellinum kippt undan þessum mikilvæga þætti víða á landsbyggðinni. Félagið vill sérstaklega andmæla því, að núverandi tímabundið efnahagsástand sé notað sem átylla til að koma að tillögum sem fyrst og fremst munu færa umsvif og þjónustu frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.

Nýjast