Á Akureyri og Egilsstöðum starfar öflugur hópur af reyndu fólki, fimm fréttamenn, auk tæknimanna og svæðisstjóra. Með
sameiningu eru lagðir saman þessir kraftar og um leið næst fram betri nýting á mannskap og meiri yfirferð á svæðinu öllu. Þetta gefur
um leið meira svigrúm til ítarlegri fréttaumfjöllunar, auk þess sem sameining eykur möguleikann á að þau svæði sem liggja
fjærst svæðisstöðvunum tveimur fái aukna athygli, segir í tilkynningu.
Jafnhliða sameiningu svæðisútsendinga á Norður- og Austurlandi hefur göngu sína nýr fréttatími kl. 11 á morgnana á
Rás2. Fréttirnar verða sagðar frá Akureyri og lögð áhersla á fréttir frá öllum svæðisstöðvum
Ríkisútvarpsins og fréttariturum um land allt. Þessum nýja fréttatíma er ætlað að undirstrika mikilvægi fréttaöflunar
á landsbyggðinni, en er um leið skref í þá átt að sérvinna
fréttir fyrir Rás 2.