Útlit fyrir að kornuppskera verði í meðallagi

Þresking á korni er hafin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og lítur vel út með uppskeru að sögn Ingvars Björnssonar ráðunautar hjá Búgarði. Hann telur að líklega verði einhver samdráttur í ræktuninni, einkum á Eyjafjarðarsvæðinu en það muni koma betur í ljós þegar uppskerustörfum lýkur. „Mér sýnist að uppskeran verði í meðallagi góð en árið verður líklega samt ekki með bestu kornárum og munar þar mestu um sólarleysi í ágúst. Tíðarfarið þessa dagana er hins vegar einstaklega hagstætt, kornið þroskast vel núna og vel gengur að skera það,“ segir Ingvar.

Nýjast