Uppskeruhátíð tónlistarskóla haldin í Ketilhúsinu

Uppskeruhátíð tónlistarskóla á Norður-og Austurlandi verður haldin í Ketilhúsinu á Akureyri laugardaginn 13. mars kl. 14:00 og 15:30. Þar koma fram tónlistarnemendur úr Tónlistarskólanum á Akureyri og fleiri skólum á svæðinu sem hafa verið valdir til þátttöku af sínum skólum.   

Uppskeruhátið tónlistarskólanna eða Nótan, byggir á því að þátttakendur séu frá öllu landinu, á öllum aldri og að efnisskráin endurspegli ólík viðfangsefni á öllum stigum tónlistarnáms. Á milli tónleika verður kaffisala. Kynnir á tónleikunum er Gunnar Gíslason, fræðslustjóri á Akureyri.  Í lok seinni tónleika á laugardag verða viðurkenningar afhentar og tilkynnt hverjir verða fulltrúar tónlistarskóla af svæðinu á lokatónleikum Nótunnar sem eru í Reykjavík 27. mars nk.

Nýjast