Samkvæmt þessum nýju lögum er Vegagerðinni heimilt að taka þátt í stofnun hlutafélags sem hefur það að markmiði að
standa að gerð jarðganga undir Vaðlaheiði ásamt vegalagningu að þeim auk annars nauðsynlegs undirbúnings. Vegagerðinni er heimilt að eiga allt
að 51% hlutafjár í félaginu og leggja til þess hlutafé í samræmi við fjárheimildir.
Þá er ráðherra heimilt að fela félaginu að annast rekstur og viðhald jarðganganna.
Kristján segir að það liggi fyrir að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng þurfi að fjármagna með lánsfé og endurgreiða svo með veggjöldum og að út frá því þurfi að búa til rekstrarmódel. Hann segir að góður gangur sé í viðræðum við fjárfesta en að ekki sé hægt að nefna neinar tímasetningar á þessari stundu.
Í lögunum kemur jafnframt fram að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að stofna opinbert hlutafélag sem verði að fullu í eigu ríkisins og hefur það að markmiði að standa að lagningu Suðurlandsvegar frá Vesturlandsvegi austur fyrir Ölfusárbrú að nýjum gatnamótum við núverandi Suðurlandsveg og Vesturlandsvegar frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum og til að ljúka við Reykjanesbraut frá Kaldárselsvegi að Víknavegi, ásamt nauðsynlegum undirbúningi.
Tilgangur félaganna er að annast framkvæmdir, þ.m.t. áætlanagerð, hönnun, útboð, samningsgerð við verktaka og annað sem nauðsynlegt er til að ljúka megi framkvæmd og taka gjald af umferð um viðkomandi vegi.