18. október, 2010 - 17:22
Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar vinnur nú að heildarstefnumörkun í sorphirðu- og flokkunarmálum sveitarfélagsins. Til að fá sem gleggsta mynd
af viðhorfi íbúa og þeim aðstæðum sem í sveitarfélaginu ríkja, verður skoðanakönnun um sorphirðumál send inn
á hvert heimili sveitarfélagsins. Skoðanakönnunin verður einnig tiltæk á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Í skoðanakönnuninni er hvert heimili beðið um að svara einföldum spurningum sem tengjast sorphirðu- og flokkunarmálum. Svo sem: þyrftir
þú tunnu undir lífrænan úrgang, o.s.frv. Niðurstöður könnunarinnar verða síðan nýttar við
ákvarðanatöku á fyrirkomulagi sorphirðu.