Ung hjón á Akureyri unnu tæpar 30 milljónir í lottóinu

Nýjasti lottómilljónamæringurinn er búinn að koma til Getspár með milljónavinningsmiðann.  Hann keypti miðann, 10 raða sjálfvalsmiða, í Hagkaupum við Furuvelli á Akureyri seinnipartinn á laugardag og vann rúmlega 28,3 milljónir. Vinningshafarnir eru ung hjón á Akureyri með þrjú börn og af einhverjum orsökum voru þau búin að tala um það alla vikuna að þau yrðu að kaupa Lottómiða og því fór heimilisfaðirinn gagngert í þeim erindagjörðum í Hagkaup til að kaupa miða.   

Fjölskyldan horfði svo á útdráttinn í beinni útsendingu í sjónvarpinu og vissi því strax að þau höfðu unnið stóran Lottóvinning.  Ferðin í Hagkaup til að kaupa Lottó á laugardaginn borgaði sig svo sannarlega og kemur vinningurinn sér afar vel, fjölskyldan ætlar að byrja á að borga skuldir og svo er draumur um að fara á ferð til að sjá formúlukeppni ofarlega á óskalistanum.  Íslensk getspá óskar vinningshöfunum innilega til hamingju með vinninginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.

Nýjast