Umvafinn Íslandsmeisturum

Björn Friðþjófsson.
Björn Friðþjófsson.

„Þetta lítur ansi vel út og ég er mjög stoltur af þeim öllum,” segir Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri Tréverk á Dalvík og stjórnarmaður í KEA og KSÍ. Björn státar af því að eiga þrjá Íslandsmeistara í knattspyrnu, en það verður að teljast ansi sjaldgjæft hjá stjórnarmanni innan knattspyrnusambandsins.

Synir hans tveir, Kristinn Þór og Atli Viðar, eru Íslandsmeistarar með sínum liðum, Kristinn mun fagna deildarsigrinum í 1. deildinni með Þór á laugardaginn kemur á meðan Atli Viðar varð Íslandsmeistari í efstu deild með FH í vikunni. Þá varð sambýliskona Kristins Þórs, Karen Nóadóttir, Íslandsmeistari með Þór/KA á dögunum.

Nánar er rætt við Björn í prentútgáfu Vikudags í dag.

Nýjast