Um 4,5% atvinnubærra alfarið án atvinnu á Akureyri

Alls eru ríflega 850 manns án atvinnu á Norðurlandi eystra, flestir á Akureyri eða um 630.  Skipting á milli kynja er nokkurn veginn jöfn, að sögn Soffíu Gísladóttur forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra. Af þeim hópi sem er á skrá eru um 200 manns í hlutastarfi, frá því að vera í  litlu starfshlutfalli og upp í allt að 80%.   

Um 430 manns á Akureyri eru án atvinnu að öllu leyti, eða 4,5%  og er stærstur hluti þess hóps ungt fólk á aldrinum 25 til 29 ára, að sögn Soffíu. „Í rauninni má segja að staðan sé ótrúlega góð miðað við hvernig ástandið er í þjóðfélaginu en á það ber að líta að september er alltaf besti mánuðurinn.  Vanalega fer fólki svo fjölgandi á atvinnuleysisskrá þegar líður á haustið og veturinn og janúar er jafnan þyngstur."

Soffía nefnir að starfsfólk í ferðaþjónustu sé enn að og hafi ekki borið mikið á samdrætti í þeim geira enn, verslun sé einnig með ágætum og þá hafi það verið gleðilegar fréttir að Icelandairhótels ætli sér að breyta gamla Iðnskólanum í hótel í vetur og hefja starfsemi næsta sumar. Soffía segir að ástandið nú beri meiri keim af þeim árstíðarsveiflum sem jafnan eru í atvinnulífinu fremur en að það sé krepputengt.  Hún nefnir að flestir iðnaðarmenn sem hún hitti að máli séu bjartsýnir, m.a. vegna þess að viðtökur við átakinu; Allir vinna, hafi verið einkar góðar.  Fjöldi iðnaðarmanna hafi fengið verkefni í tengslum við það átak.  Hvað unga fólkið varðar er verkefnið „Ungt fólk til athafna"  í gangi sem miði að því að koma því í virkni sem og ÞOR „Þekking og reynsla"  sem er virkniverkefni fyrir langtímaatvinnulausa. „Þessi verkefni  ganga vel, enda fjöldi úrræða í boði," segir Soffía.

Nýjast