Um 130 heimili fengu aðstoð fyrir páskana

Álag hefur heldur aukist að undanförnu hjá Mæðrastyrksnefnd á Akureyri og þangað leitar mikill fjöldi fólks eftir aðstoð. Páskaúthlutun var í vikunni sem leið og fengu þá 130 heimili aðstoð frá nefndinni. Á hinn bóginn leita heldur færri til Hjálparstarfs kirkjunnar en verið hefur.

Jóna Berta Jónsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar segir að mikill fjöldi fólks hafi leitað eftir aðstoð frá áramótum, en nefndin hefur úthlutað gjafabréfum til þeirra sem óskað hafa eftir aðstoð hennar. „Það er svo sannarlega nóg að gera hjá okkur og ég veit ekki hvort álagið geti aukist mikið meira en orðið er. Þetta hefur aukist gríðarlega og má segja að fyrst hafi orðið vart við þá aukningu strax og efnahagshrunið varð í október 2008 og hefur haldist síðan. Við höfum reynt að vera með úthlutun einu sinni í mánuði allt árið, en það fyrirkomulag var ekki við lýði fyrir hrun.” Jóna Berta segir að óljóst sé á þessari stundu hversu lengi fram eftir ári Mæðrastyrksnefnd geti veit skjólstæðingum sínum aðstoð. „Það hefur gengið vel hjá okkur, margir leggja okkur lið og án aðstoðar þeirra gætum við ekki haldið þessu starfi úti. Staðan er hins vegar sú að það er óljóst hversu lengi við getum boðið upp á óbreytta aðstoð.“ Jón Oddgeir Guðmundsson hjá Hjálparstarfi kirkjunnar segir að heldur hafi dregið úr aðstoð þar. Eftir áramót var fólk sem leitaði liðsinnis Hjálparstarfsins beðið um að upplýsar um tekjur og gjöld, þannig að hægt væri að glöggva sig á því úr hverju menn hefðu að spila. Í kjölfarið datt hópur sem leitað hafði aðstoðar út. Bæði Jóna Berta og Jón Oddgeir tóku fram að enginn mannamunur væri gerður á þegar að úthlutun kæmi og fólki ekki mismunað eftir kynþætti, trúarbrögðum eða öðru.

Nýjast