Íslenska U18 ára landsliðið í handbolta karla hefur leik í dag í lokakeppni Evrópumeistaramótsins sem fram fer í Svartfjallalandi. Með liðinu leika norðanmennirnir Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason.
Ísland er í riðli með Slóveníu, Sviss og Tékklandi. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðla. Ísland mætir Slóveníu í dag kl. 11:30 að íslenskum tíma.
Íslenski hópurinn er þannig skipaður:
Markmenn
Brynjar Darri Baldursson, Stjarnan
Sigurður Ingiberg Ólafsson, FH
Aðrir leikmenn
Arnar Birkir Hálfdánarson, Fram
Arnar Daði Arnarsson, Haukar
Árni Benedikt Árnason, Grótta
Bjartur Guðmundsson, Valur
Geir Guðmundsson, Akureyri
Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri
Ísak Rafnsson, FH
Leó Pétursson, HK
Magnús Óli Magnússon, FH
Pétur Júníusson, Afturelding
Rúnar Kristmansson, Stjarnan
Sveinn Sveinsson, Valur
Víglundur Þórsson, Stjarnan
Þráinn Orri Jónsson, Grótta