Tvö tilboð bárust í grasslátt á Akureyri

Aðeins tvö tilboð bárust í grasslátt á Akureyri en tilboðin voru opnuð í dag. Addi Tryggva ehf. átti lægra tilboðið en það hljóðaði upp á 27 milljónir króna en Íslenska gámafélagið bauð rúmar 27,8 milljónir króna. Verkið var boðið út til þriggja ára.  

Um er að ræða grasslátt og hirðingu á um 25 hekturum,  í Naustahverfi, Innbæ, Oddeyri og Neðri-Brekku ásamt stofnunum Fasteigna Akureyrarbæjar.

Nýjast