Tvö skemmtiferðaskip í heimsókn á Akureyri

Tvö skemmtiferðaskip komu til Akureyrar í morgun, með samtals hátt í 3.000 farþega og tæplega 1.100 áhafnameðlimi. Stærra skipið heitir Arcadia og er um 83.000 brúttótonn að stærð en það minna heitir Le Boreal og er tæplega 11.000 brúttótonn. Arcadia er með um 2.600 farþega og 912 manns í áhöfn en Le Boreal er með um 240 farþega og tæplega 150 manna áhöfn. Það var því mikið líf á Oddreyrarbryggju og Tangabryggju í morgun, enda voru margir farþeganna að fara með rútum í skoðunarferð í Mývatnssveit. Á fimmtudagsmorgun kemur skemmtiferðaskipið Celebrity Edipse til Akureyrar en þetta er stærsta skipið sem kemur til bæjarins í sumar. Það er 122.000 brúttótonn að stærð og um borð eru rúmlega 2.900 farþegar og rúmlega 1.200 manna áhöfn. Þetta er fyrri heimsókn skipsins til Akureyrar en það kemur aftur í næsta mánuði.

Nýjast