Stórleikur áttundu umferðarinnar á Íslandsmótinu í 1. deild karla í knattspyrnu fer fram á Þórsvelli í dag þegar
Þór og ÍR eigast við. ÍR situr á toppi deildarinnar með 16 stig en Þór hefur 14 stig í þriðja sæti og með sigri
í dag ná norðanmenn toppsætinu. Slippurinn á Akureyri ætlar að bjóða bæjarbúum á leikinn og klukkutíma fyrir leik
verður boðið upp á grill og andlitsmálningu á svæðinu við Þórsvöll. Þorsteinn Ingason, fyrirliði Þórs, segir
sína menn vel stemmda fyrir leiknum í dag.
„Þessi leikur leggst mjög vel í okkur, við erum búnir að vera á ágætis siglingu og með sigri í dag sendum við skýr
skilaboð um hvar við ætlum að vera í deildinni,“ segir Þorsteinn.
Trausti Björn Ríkharðsson, fyrirliði ÍR- inga, býst við hörkuleik á Þórsvelli í dag. „Þetta er sterkt
lið sem við erum að fara að mæta og mikil áskorun fyrir okkur,“ segir Trausti.
Nánari upphitun um leikinn má sjá í nýjasta tölublaði Vikudags.