Tíu þúsund fleiri gestir í Sundlaug Akureyrar

Sundlaug Akureyrar. Mynd: Hörður Geirsson.
Sundlaug Akureyrar. Mynd: Hörður Geirsson.

Tæplega tíu þúsund fleiri gestir hafa sótt Sundlaug Akureyrar heim það sem af er sumri, í júní, júlí og það sem af er ágúst, miðað við sama tíma í fyrrasumar. „Mestu munar þar um júní sem var mun betri í ár en fyrra, betra veður og meiri sól og það skilar sér í fleiri gestum í sundlaugina. Annars hefur sumarið verið einstaklega sólríkt og gestir hafa notið þess að eiga góða stund í lauginni,“ segir Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar.

Hún bætir við að ekki síður hafi gestir notið þess að hvíla sig í sófanum sem eru við laugina og starfsmenn hafi fært þeim te einu sinni á dag, „við miklar vinsældir,“ segir hún. Sófinn er eitt af sýningarverkum Dýfanna, hóps listamanna sem sýna verk sín á sundlaugarsvæðinu í sumar í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar.

 

Nýjast