Gott verð til Kaupmannahafnar um helgina í boði hjá Niceair
Stundum er sagt að ef eitthvað hljómi of vel til að vera satt sé það nú liklega einmitt það sem er. Þessi fullyrðing á þó alls ekki við um kostaboð sem fólki býðst á ferð til Kaupmannahafnar um helgina með Niceair
Súlur flugvél félagsins er i reglubundinni skoðun í Portúgal og mun stærri flugvél leysir Súlur af. Það þótti því kjörið að bjóða ,,næs" verð eða eins og segir i tilkynningu frá félaginu í morgun:
Næs tilboð fyrir næs vini
Hundtrygga vélin okkar, Súlur, skrapp til Portúgals í smá ást og umhyggju, í hennar stað kom stóra systir af gerðinni A321 í heimsókn. Sú vél er með 220 sæti og því ekkert annað að gera en að henda í tilboð.
Nú gefst því einstakt tækifæri til að stökkva til Köben, nú eða fá vini og ættingja norður yfir helgina
Verð: 25.000 kr. fyrir flug báðar leiðir.
Flogið er fimmtudaginn 9. mars og sunnudaginn 12. mars.