"Þurfum að laða að okkur karlmenn"

Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Af þeim 289 nemendum sem brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri nýverið, voru konur í miklum meirihluta eða 80%. Konur voru 224 á móti 65 körlum.

„Skiptingin í skólanum hjá okkur er í þessum dúr eða um 70% konur og karlarnir eru um 30 %. Svo sveiflast alltaf á milli ára hvernig þetta kemur út í brautskráningarhópnum,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri HA. Um mögulegar skýringar á þessu mikla misvægi milli kynja í skólanum segir Dagmar að hugsanlega megi rekja það til námsframboðs skólans. „Það virðist vera mjög inngróið að konur sæki í greinar eins og hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði og kennaranám en karlar síður. Okkur langar hins vegar til þess að breyta þessu og við þurfum að finna einhverjar leiðir til að laða karlmenn að þessu námi. Það er heillavænlegast fyrir þjóðfélagið að bæði kyn sinni þessum störfum.“ Dagmar segir konur einnig vera í meirihluta á félagsvísindasviði en skiptingin sé jafnari í viðskiptafræði og lögfræði. „Það er eingöngu í sjávarútvegsfræði sem karlarnir eru í meirihluta.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast