Þrettán í einum búningsklefa eina kvöldstund

Freyvangsleikhúsið frumsýnir i kvöld Útsynning  Myndir aðsendar
Freyvangsleikhúsið frumsýnir i kvöld Útsynning Myndir aðsendar

„Nú er allt að verða klárt og mikil tilhlökkun í loftinu,“ segir Jóhanna S. Ingólfsdóttir leikstjóri og formaður Freyvangsleikhússins. Þar á bæ verður glænýtt íslenskt leikrit, Útsynningur frumsýnt í kvöld, föstudagskvöldið 9. október kl. 20. Verkið er eftir Hjálmar Arinbjarnarson, sem er sannkallaður innanbúðarmaður í Freyvangsleikhúsinu en hann hefur tekið þátt í starfi þess í yfir 20 ár. Verkið verður einungis sýnt í október, miðasala fer mjög vel af stað og hvetur Jóhann áhugasama því að hafa hraðar hendur og tryggja sér miða í tíma.

„Það er mikið um að vera hjá okkur í Freyvangsleikhúsinu og því höfum við ekki svigrúm nema til að bjóða upp á 6 sýningar í október,“ segir Jóhanna en rýma þarf sviðið í lok mánaðarins fyrir æfingar á aðventusýningu fyrir börn sem hefð er fyrir. „Þær njóta mikilla vinsælda og við höldum okkur við hefðina.“ Eftir áramót hefjast svo æfingar á nýju verki.

„Þetta er gamanleikur,“ segir Jóhanna um verkið, en það gerist í rauntíma á einni kvöldstund í búningsklefa hjá áhugaleikfélagi úti á landi. Á sviðinu er verið að sýna leikritið Cloud Nine. Leikfélagið hefur aðstöðu í félagsheimili í sveitinni og hjá því starfar svo til alveg glataður húsvörður. Hann hefur fyllt hinn búningsklefa félagsheimilisins af hljómsveitardóti þannig að allir leikarar þurfa að deila einum og sama búningsklefa.

Áhugaleikhópur sýnir frægt ádeiluverk

„Það fer ekki hjá því að ýmislegt getur komið upp á þegar 11 leikarar þurfa að samnýta búningsklefa þegar við bætist að húsvörðurinn er ekki starfi sínu vaxinn. Ofan á það bætist að einn leikaranna í hópnum hefur boðið kærustu sinn með. Það eru því í allt 13 manneskjur í klefanum þegar mest er,“ segir Jóhanna.

Verkið Cloud Nine sem hópurinn er að sýna er frægt breskt ádeilduleikrit eftir Caryl Churchill og var frumsýnt 1979. Verkið er einkum þekkt fyrir hvassa ádeilu á kynhlutverk, kynhneigð, heimsvaldastefnu og feðraveldi. Fyrri hluti þess gerist árið 1880 og sá seinni hundrað árum síðar eða 1980. Leikritið hefur að því best er vitað aðeins einu sinni verið sett upp hér á landi. Það var Leikfélag VMA sem það gerði árið 1993 og var Hjálmar höfundur Útsynnings í hópi leikara. Leikritið fékk á þeim tíma íslensku þýðinguna Fyrir austan mána.

Getur gengið á ýmsu baksviðs

Að hluta til leika karlmenn konur og öfugt þannig að það er oft mikið um að vera í búningsklefanum við fataskipti og annað sem tilheyrir. „Það veit í raun enginn nema þeir sem reynt hafa hvað gerist í búningsklefum. Áhorfendur sitja frammi í sal og einbeita sér að sviðinu og því sem þar fer fram. En það getur svo sannarlega gengið á ýmsu baksviðs. Þetta er stór hópur áhugaleikara sem þarna kemur saman og það er misjafn sauður í mörgu fé. Sumir telja sig eiga mikið erindi á svið og vilja skína skært á meðan aðrir hafa mun minni metnað og væntingar til leikaraferils síns. Það eru líka þarna auk leikara tvær aðrar persónur og óhætt að segja að mikið gengur á og margt kemur upp þessa kvöldstund,“ segir Jóhanna.

 

Nýjast