Þórsarar urðu að játa sig sigraða í Breiðholtinu

Þórsarar sóttu ekki gull í greipar Leiknismanna er þeir sóttu þá heim í Breiðholtið í kvöld, í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Heimamenn í Leikni fóru með sigur af hólmi 1:0 en það var Hilmar Árni Halldórsson sem skoraði markið mikilvæga. Eftir um 15 mínútna leik í seinni hálfleik, vann hann boltann á miðjunni, lék honum upp að vítateig og vippaði yfir markvörð Þórs. Leiknir hefur unnið báða leiki sína í deildinni en Þór er með eitt stig eftir tvær umferðir.

Nýjast