Þórsarar á toppinn eftir öruggan sigur á KA

Þórsarar tylltu sér á topp 1. deildar karla í knattspyrnu eftir 3:0 sigur gegn KA á Þórsvelli í kvöld. Það voru þeir Atli Sigurjónsson, Þorsteinn Ingason og Sigurður Marínó Kristjánsson sem skoruðu mörk Þórs í leiknum. Þar með hefur Þór 40 stig á toppi deildarinnar, einu stigi meira en Leiknir og Víkingur R. sem eiga leik til góða á laugardaginn kemur. KA- menn hafa áfram 24 stig í sjöunda sæti. Það var mikil stemmning á Þórsvellinum í kvöld en alls voru 1550 manns á vellinum sem létu vel í sér heyra. 

Þórsarar fengu draumabyrjun er Atli Sigurjónsson skoraði eftir rúmlega fjögurra mínútna leik af stuttu færi inn í teig. Vel gert hjá Atla og staðan 1:0. Leikurinn var hníjafn og Daniel Alan Stubbs fékk tvö ágætis færi fyrir KA snemma í leiknum en tókst ekki að færa sér það í nyt. Kristján Steinn Magnússon kom inn á lið Þórs á 21. mínútu fyrir Ármann Pétur Ævarsson, sem glímir við meiðsli, og var Kristján nálægt því að bæta við marki fyrir heimamenn stuttu eftir innkomuna en skot hans hafnaði í stönginni eftir fína skyndisókn Þórsara. 

Aðeins mínútu síðar kom annað mark Þórs og það skoraði fyrirliði heimamanna, Þorsteinn Ingason, af stuttu færi eftir darraðadans inn í teig gestanna. Staðan 2:0 fyrir heimamenn eftir rúmlega tuttugu mínútna leik, en gestirnir voru þó síst lakari aðilinn í leiknum fram að þessu. Þórsarar fengu hins vegar byr undir báða vængi eftir annað markið og sóttu meira. Atli Sigurjónsson var nálægt því að skora þriðja mark Þórs þremur mínútum síðar en glæsilegt skot hans úr aukaspyrnu hafnaði í stönginni. KA- menn voru nálægt því að minnka muninn þegar fjórar mínútur voru til loka fyrri hálfleiks er varnarmaðurinn Haukur Hinriksson átti skalla í þverslána. Þórsarar voru svo nálægt því að bæta við sínu þriðja marki skömmu fyrir hlé er Sveinn Elías Jónsson komst einn gegn Sandor Matus í marki KA en Sandor sá við honum. Staðan í hálfleik, 2:0.

KA-menn lágu vel á Þórsurum snemma í seinni hálfleik en Þórsarar stóðu þá pressu af sér. Það fór að lifna yfir heimamönnum þegar líða tók á hálfleikinn og Sigurður Marinó Kristjánsson átti skot á 65. mínútu sem var varið á línu af varnarmanni KA. Það var svo á 70. mínútu sem þriðja mark Þórs í leiknum leit dagsins ljós og kom það eftir skelfileg mistök Sandor Matus í marki KA. Sandor ætlaði að hreinsa boltann frá markinu en sendi boltann beint á Sigurð Marínó Kristjánsson sem þakkaði fyrir sig með marki rétt fyrir aftan miðju.

Lokatölur sanngjarn 3:0 sigur Þórs.   

Nýjast