Þór/KA steig stórt skref í átt að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í knattspyrnu kvenna er liðið lagði Aftureldingu að velli, 1-0, á Þórsvelli í kvöld í Pepsi-deild kvenna. Það var Tahnai Annis sem skoraði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik. Norðanstúlkur hafa sjö stiga forystu á toppi deildarinnar. Þá var einnig leikið í 1. deild karla í knattspyrnu þar sem Þór vann ÍR á útivelli, 2-1, og KA burstaði nýliða Hattar, 4-1, á heimavelli.
Ármann Pétur Ævarsson skoraði bæði mörk Þórs gegn ÍR og Orri Freyr Hjaltalín skoraði sjálfsmark. Í leik KA og Hattar skoraði Jóhann Helgason tvívegis fyrir heimamenn og þeir Brian Gilmour og Hallgrímur Mar Steingrímsson sitt markið hvor. Mark Hattar skoraði Elmar Bragi Einarsson.
Eftir leiki kvöldsins er Þór í efsta sæti deildarinnar með 32 stig en KA er komið í fjórða sætið með 26 stig. Liðin mætast innbyrðis á laugardaginn kemur á Þórsvelli kl. 17:30.