Þór/KA er komið með fimm stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á útivelli gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar í kvöld í toppslag deildarinnar. Sandra María Jessen var allt í öllu hjá norðanliðinu en hún lagði upp fyrra mark liðsins sem Tahnai Annis skoraði eftir fimm mínútna leik og skoraði svo sjálf sigurmarkið þegar korter var eftir af leiknum. Í millitíðinni hafði Harpa Þorsteinsdóttir jafnaði metin fyrir Stjörnuna fimm mínútum fyrir leikhlé.
Stjarnan var mun sterkari aðilinn í leiknum en Þór/KA nýtti færin sín betur og innbyrti mikilvæg þrjú stig. Þór/KA hefur 25 stig í efsta sæti deildarinnar að tíu umferðum liðnum en Breiðablik og Stjarnan koma í næstu sætum með 20 stig hvort.