Þór lagði Hauka að velli, 2-1, er liðin mættust á Þórsvelli í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. Staðan í hálfleik var jöfn, 1-1. Chukwudi Chijindu og Sigurður Marinó Kristjánsson skoruðu fyrir Þór en Magnús Páll Gunnarsson skoraði mark Hauka. Þór hefur 20 stig í fjórða sæti deildarinnar en Haukar hafa 23 stig í þriðja sæti. Þórsarar hafa hins vegar leikið tveimur leikjum minna en önnur lið í deildinni.