Þór aftur á sigurbraut eftir heimasigur gegn Hetti

Þór lagði Hött að velli, 93:77, í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag á Íslandsmótinu í 1.deild karla í körfubolta. Konrad Tota skoraði 27 stig fyrir Þór í leiknum og Ólafur Torfason 20 stig. Hjá Hetti var Davíð Arnar Ragnarsson stigahæstur með 19 stig og Björn Benediktsson skoraði 16 stig. Með sigrinum er Þór komið með 14 stig í þriðja sæti deildarinnar en Höttur hefur áfram fjögur stig í næstneðsta sæti. Efsta lið deildarinnar, Þór Þorlákshöfn, styrkti stöðu sína á toppnum með öruggum útisigri gegn Ármanni í dag og hefur nú 20 stig í efsta sæti.

Nýjast