17. nóvember, 2010 - 15:39
Þessa stundina er asahláka á Akureyri og rigning og eru dæmi um að þök séu farin að leka víða í bænum. Af þeim
sökum hafa orðið skemmdir innandyra. Mikill snjór er á þökum í bænum eftir mikla snjókomu um síðustu helgi. Víða hanga
grýlukerti í þakskeggjum húsa og eða að snjóhengjur slúti fram af þökum.
Slíkt getur skapað mikla hættu, nú þegar farið er að hlýna á ný og er full ástæða til að biðja fólk
að vera á varðbergi gagnvart slíku.