Þjóðfundur á Norðaustursvæði haldinn í VMA á morgun

Á morgun, laugardaginn 27. febrúar, verður haldinn þjóðfundur fyrir Norðausturland, þ.e. svæðið frá Fjallabyggð og austur í Langanesbyggð. Fundurinn verður í Verkmenntaskólanum á Akureyri og stendur frá kl.10 til 17. Gert er ráð fyrir 180 þátttakendum og hafa boðsbréf verið send út. Á fundinum verður unnið í 9 manna hópum, eða borðum, undir leiðsögn. Dregin verða fram sóknarfæri landshlutans byggð á styrkleikum og sérstöðu sem til staðar eru á svæðinu. Afakstur fundarins fer síðan til frekari úrvinnslu og eftifylgni.  

Hluti af verkefninu 20/20 Sóknaráætlun fyrir Ísland er gerð sóknaráætlunar fyrir hvern landshluta. Markmiðið er að draga fram styrkleika og sóknarfæri hvers svæðis og gera tillögur og áætlanir á grunni þeirra. Skipulagðir eru "þjóðfundir" í hverjum landshluta á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga, sem að mörgu leyti svipar til þjóðfundar Mauraþúfunnar sem haldin var í Laugardalshöllinni. Þangað er boðið fulltrúum hinna ýmsu hagsmunaaðila ásamt jafnstórum hópi íbúa svæðisins (50 - 90 manns) sem valdir eru með slembiúrtaki. Þjóðfundir hafa þegar verið haldnir í þremur landshlutum.

Dagskrá fundarins í VMA á morgun er þessi:

09:30           Skráning og móttaka þátttakenda

09:45           Þátttakendur fara á borð sín og stutt kynning við borðin

10:00           Setning fundar og opnunarávarp

10:20           Staða svæðisins kynnt

10:40           Kynning á aðferðafræði VRIO plús

11:00           Stutt myndband til að kveikja hugmyndir

11:10           Þátttakendur ræða athyglisverð atriði úr kynningum og greina frá væntingum sínum til fundarins

11:30           Söfnun „sérstöðu-hugmynda"

12:00           Matarhlé

12:45           VRIO plús greining á „sérstöðu-hugmyndum"

13:45           Útfærsla 4-5 bestu hugmynda varðandi, notendur sérstöðu, form og leiðir til að viðhalda sérstöðu.

15:00           Kaffihlé

15:10           Kynningar á niðurstöðum borða

17:00           Dagskrá lokið og þátttakendur setja hugmyndir/tillögur í hugmyndabanka           

Nýjast