Ég óska stelpunum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og ég fullyrði að allir bæjarbúar eru afar stoltir, segir Eiríkur Björn Björgvinson bæjarstjóri á Akureyri í tilefni þess að lið Þórs/KA í kvennaknattspyrnu varð Íslandsmeistari í gærkvöld. Síðan má ekki gleyma þeim fjölmörgu sem starfa utan vallar, þeirra vinna er gríðarlega mikilvæg.
Bæjarstjórinn segir að undirbúningurinn að titlinum hafi í raun og veru staðið yfir í mörg ár. Ef hægt er að hugsa sér hentugan tíma, er afmælisárið rétti tíminn til að taka á móti gulli og bikurum. Okkur hafa borist margar veglegar afmælisgjafir að undanförnu og þessi titill er gjöf sem allir bæjarbúar kunna vel að meta. Það fólk sem ég hef talað við í dag, fagnar innilega. Íslandsmeistararnir eru sannarlega stelpurnar okkar.