Sem vænta mátti eru áhrif gossins á flugsamgöngur til og frá landinu hér að koma fram. Niðurstöður úr talningunum í Leifsstöð sýna fækkun frá öllum mörkuðum, mesta frá Bretlandi og Norðurlöndunum eða í kringum fjórðungsfækkun og frá fjarmörkuðum eða um fimmtungsfækkun. Gestum frá Mið- og S-Evrópu fækkar um 11% en minnst er fækkunin frá Norður Ameríku eða um 5,1%. Frá áramótum hafa 116 þúsund erlendir gestir farið frá landinu um Leifsstöð sem er 6,5 prósenta fækkun frá árinu áður. Að viðbættum 2.300 brottförum erlendra gesta í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll nemur fækkunin 4,6%.
Brottförum Íslendinga um Leifsstöð fjölgaði hins vegar um tæp 4% í maí, voru 23.200 í maí2010 en 22.400 árinu áður. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur fjölgað um 2,8% í samanburði við sama tímabil á fyrra ári.
Mikilvægir mánuðir framundan
Framundan eru stærstu ferðamannamánuðir ársins en helmingur erlendra gesta kemur til landsins sumarmánuðina þrjá, júní,
júlí og ágúst. Vonir standa til að hið umfangsmikla landkynningarátak sem nú er í gangi, Inspired by Iceland, hafi sitt að segja og
nái að vega upp á móti neikvæðum áhrifum gossins, ásamt því að styrkja ímynd Íslands og skapa tækifæri
úr þeirri umfjöllun sem landið hefur fengið á erlendum vettvangi.