Aðsóknin hefur verið fín hjá okkur þetta fyrsta ár og það er alltaf reitingur, segir Ólafur Sveinsson safnstjóri á Mótorhjólasafni Íslands á Akureyri. Safnið hefur verið starfandi í rúmlega ár en það var stofnað þann 15. maí í fyrra í minningu Heiðars Þ. Jóhannssonar vélhjólamanns sem lést í mótorhjólaslysi árið 2006. Frá maí í fyrra til áramóta heimsóttu um 3000 þúsund gestir safnið en Ólafur á von á því að sú tala tvöfaldist þetta árið. Hann segir þó lítið um að heimamenn sæki safnið heim.
Síðasta einn og hálfan mánuðinn hafa nánast bara erlendir ferðamenn heimsótt safnið og mér finnst vanta að heimafólk komi til okkar. Ég hvet alla Akureyringa og nærsveitarmenn að koma hérna við og sjá þessa gripi sem við erum með til sýnis, segir Ólafur.
Á safninu má finna mótorhjól af öllum stærðum og gerðum, gömlum og nýjum. Að jafnaði eru sextíu hjól til sýnis og er elsta hjólið frá árinu 1928 og það allra nýjasta er frá árinu 2000. Það sem við á safninu erum að reyna að gera er að sýna þessa rúmlega hundrað ára sögu sem bifhjólið á sér á Íslandi. Við erum að sýna hjól sem hafa ekki sést mikið á götum landsins. Auk hefðbundinnar safnastarfsemi er hugmyndin að skapa athvarf fyrir hjólafólk, hvort heldur er Akureyringa eða annað hjólafólk á ferð um landið.
Meðal þess sem starfrækt er í tengslum við safnið er minjagripasala og sölusýningar, svo fátt eitt sé nefnt. Eitt herbergið á safninu er tileinkað Heiðari, svokallað Heidda herbergi, og þar er að finna allskyns persónulega muni tengda honum.
Þau hjól sem þar eru inni er eingöngu þau sem hann átti en þau voru alls 22 þegar hann lést. Svo eru þar einnig hjól sem hafa verið gefin eða lánuð. Heiðar hafði líka ástríðu fyrir Zippo kveikjurum og safnaði þeim og það safn er til sýnis. Hann vann einnig til fjölda verðlauna fyrir bæði sýningar og akstursíþróttir af öllu tagi og allir verðlaunagripirnir eru til sýnis í herberginu, segir Ólafur.
Hann stefnir að því að gera safnið eins lifandi og hægt er. Ég reikna með að breyta allri uppsetningu á hjólunum á nokkurra vikna fresti, hafa mismunandi tegundir af hjólum hverju sinni og svo er stefnan að hafa þemakvöld. Þannig að það eru spennandi tímar framundan hjá okkur, segir Ólafur. Safnið er staðsett á Krókeyri 2 á Akureyri og er opið frá 10-17:00 alla daga. Einnig er hægt að sjá ýmsan fróðleik tengdan safninu og mótorhjólunum sem þar eru á: www. motorhjolasafn.is