Sýningin Date var frumsýnd fyrir troðfullu húsi í Rýminu um síðustu helgi. Viðtökurnar voru framar björtustu vonum og fólk sprakk úr hlátri. Stemningin á sýningunni er skemmtileg. Salurinn er allur hvítur með bleikri lýsingu og í honum er fjöldu dúkalagðra borða. Barinn var fluttur upp og á meðan að áhorfendur hlægja geta þeir pantað sér á barnum og notið sýningarinnar sitjandi við borð. Sýningin fjallar um allt það sem þú átt ekki aðgeraá stefnumóti. Lélegar "pick-up"línur, hvað á ekki að segja og hvernig á ekki að bera fram bónorð. Þessi sprenghlægilegu atriði eru fléttuð saman og á milli atriða eru sumarleg söngatriði. Megintilgangur sýningarinnar er að koma öllum áhorfendum til að hlæja og skemmta sér vel.
Sumarsýning á Akureyri er nýjung og tilraun sem virðist ætla að heppnast vel. Leikfélagið sem stendur að sýningunni kallast Norðurbandalagið og inniheldur 13 listamenn sem öll eru búsett á Norðurlandi. Leikstjóri sýningarinnar er Jón Gunnar Þórðarson. Sýningin er ekki við hæfi barna undir 14 ára. Næstu sýningar eru á fimmtudags- og föstudagskvöld.